Upplýsingar varðandi kaup og sölu fasteigna Kaupendur Seljendur

Til Kaupenda

Þegar kaupandi hefur fundið fasteign sem honum líst vel á og vill kaupa er hann kominn á það stig að gera tilboð í eignina. Gott er að vera áður búinn að fara í greiðslumat eða gera eigið greiðslumat á netinu. Greiðslumat er forsenda umsóknar um húsnæðislán Íbúðalánasjóðs.Að því loknu er farið á fasteignasöluna þar sem gert er skriflegt bindandi kauptilboð. Kauptilboð gildir almennt í sólarhring. Starfsmaður Holts tekur niður kauptilboðið og setur sig í samband við eiganda eignarinnar. Eigandinn svarar tilboðinu og samþykkir það, hafnar því eða gerir gagntilboð til kaupandans.

Öll tilboð eru gerð með fyrirvara um afgreiðslu lána frá Íbúðalánasjóði. Lán Íbúðalánasjóðs geta numið 80% af kaupverði íbúða. Íbúðasjóðslán eru að hámarki 20,0 milljónir.

Við ráðleggjum kaupendum í greiðslumati að kynna sér það vel, hvort taka skuli lán til 20, 30 eða 40 ára, en það ræðst að miklu leyti til af greiðslugetu annars vegar og hins vegar hvort verið er að fjárfesta fyrir lengri eða skemmri tíma.

Þegar Íbúðalánasjóður hefur afgreitt lánið eru kaupandi og seljandi boðaðir á fasteignasöluna og gengið er frá undirritun kaupsamnings og ÍLS-veðbréfs (fasteignaveðbréfs Íbúðalánasjós) og annarra skjala. Þegar öll ákvæði kaupsamnings eru uppfyllt eru kaupandi og seljandi boðaðir til afsalsgerðar.
 

Þinglýsing kaupsamnings
Kaupsamningi þarf að þinglýsa strax hjá viðkomandi sýslumannsembætti. Holt sér um að þinglýsa kaupsamningnum og öllum öðrum skjölum.

Kaupsamningsgreiðslur
Gættu þess að greiða allar greiðslur á gjalddaga samkv. A lið kaupsamnings. Ef ekki er greitt á gjalddaga er seljanda heimilt að reikna dráttarvexti á greiðsluna. Ef fyrirsjáanlegt er að dráttur getur orðið á greiðslunni er nauðsynlegt að tilkynna það strax og semja um nýja greiðsludagsetningu.

Yfirtekin lán
Seljanda ber að tilkynna strax nafnabreytingu á lánum sem eru yfirtekin af kaupanda. Holt sér um að tilkynna nafnabreytingar til viðkomandi lánastofnunnar. Ef kaupandi fær ekki senda greiðsluseðla á gjalddaga skal hann hafa samband við seljanda eða Holt.

Aflýsing lána
Athugaðu vel rétt þinn til að halda eftir greiðslu, ef seljandi hefur ekki aflýst áhvílandi lánum á umsömdum degi. Þó má aðeins halda eftir greiðslu á þann hátt, að unnt sé að sýna fram á að hún hafi verið handbær á gjalddaga. Hafa skal samband við Holt ef slík staða kemur upp.

Afsal
Afsal fer fram milli aðila þegar kaupandi hefur fullnægt skuldbindingum samkvæmt kaupsamningi og seljandi afhent kaupanda eignina. Afsal og lokagreiðsla fer fram á Holti. Kaupandi eignarinnar verður ekki löglegur eigandi eignarinnar fyrr en búið er að þinglýsa afsalinu.

Afhending eignar - leyndir gallar .
Íbúð skal afhent vel hreingerð á hádegi afhendingardags. Ef fram koma gallar á eigninni eftir afhendingu skal tilkynna það strax skriflega til seljanda og senda Holti afrit af bréfinu. Annars er hætt við að hugsanlegur bótaréttur fyrirgerist.
 
Til kaupenda og seljenda

Varðveitið öll skjöl sem snerta fasteignaviðskiptin. Geymið söluyfirlit, kauptilboð, kaupsamning, afsal, allar kvittanir vegna afborgana lána, fasteignagjalda, brunaiðgjalda, yfirlýsingu húsfélags, greiðslu húsgjalda o.s.frv. Gott er að geta gengið að gögnunum á vísum stað ef þörf er á þeim síðar meir. Seljandi og kaupandi fá öll sín gögn er varða viðskiptin afhent í gormaðri möppu við undirritun kaupsamnings.

Um veðleyfi - veðflutninga.
Um leið og kauptilboð hefur verið gert er nauðsynlegt að vita hvort kaupandi yfirtaki áhvílandi veðskuldir, og ef ekki hvað gera skuli við þær. Einnig þarf að vera ljóst hvort kaupandi ætlar að taka nýtt lán með veði í eigninni. Strax í byrjun þarf að huga að þessum þáttum, svo komast megi hjá töfum og vandamálum síðar meir. Seljanda er heimilt að flytja lán Íbúðarlánasjóðs með sér yfir á nýja eign að uppfylltum skilyrðum um veðhæfi.

Um þinglýsingar
Holt fasteignasala sér um að fara með öll skjöl til þinglýsingar, og sendir síðan þinglýst skjöl ásamt kvittunum til kaupanda.

Um gjöld vegna þinglýsinga
1. Kostnaður við að þinglýsa hverju skjali er nú 2.000 kr.

2. Kaupandi greiðir stimpilgjald af kaupsamningi og þinglýsingargjald af afsali um leið og skjölin eru lögð inn til þinglýsingar. Stimpilgjald kaupsamnings er nú
0,4 % af fasteignamati húss og lóðar.

3. Kaupandi greiðir stimpilgjöld af ÍLS-veðbréfi um leið og það er lagt inn til þinglýsingar. Stimpilgjald af ÍLS-veðbréfum er 1,5 % af fjárhæð bréfsins. Þeir sem eru að kaupa fasteign í fyrsta skipta þurfa ekki að greiða stimpilgjald af lánum.
 

Við vonum að þessi atriði komi þér að góðum notum

Holt Eignamiðlun ehf. - Strandgötu 13 - 600 Akureyri - Sími 464 7800 - Fax 464 7808

Copyright © 2010 HOLT.