Holt eignamiðlun 464-7800 kynnir: Furulundur 2, Akureyri 122 fm, fjögurra herbergja raðhús á tveimur hæðum í einu vinsælasta hverfi á Akureyri. Stutt í alla þjónustu, skóla, leikskóla og menntaskóla, verslanir og tómstundastarf. Gengið er inn í íbúðina á neðri hæðinni og komið inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Innaf forstofunni er þvottahús og geymsla, einnig flísalagt. Þar er borðplata með vask og gott hillupláss. Auðveldlega er hægt að koma þar fyrir þvottavél, þurrkara, frystikistu og fleira dóti. Sérútgangur er úr þvottahúsinu. Úr forstofunni er komið inní stórt alrými sem hýsir stofu, borðstofu og eldhús. Stofan og borðstofan eru parketlagðar, bjartar og rúmgóðar. Útgengt er úr stofunni til suðurs út á stóra viðarverönd með háu tréverki. Eldhúsið hefur verið endurnýjað, þar eru flísar á gólfi, nýleg, hvít háglans inntétting með góðu skápaplássi, trébekkir og náttúrusteinn á milli efri og neðri skápa. Tækin í eldhúsinu hafa einnig verið endurnýjuð en þar er svart spanhelluborð og AEG bakarofn úr ryðfríu stáli í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingunni. Salerni er á hæðinni þar eru flísar á golfi og hvít hreinlætistæki. Undir stiganum upp á efri hæðina er djúp geymsla. Stiginn upp á efri hæðina er parketlagður eins og öll efri hæðin nema baðherbergið. Á hæðinni eru 3 svefnherbergi , 1 fataherbergi og baðherbergi. Á hæðinni hafa upprunalega verið 4 svefnherbergi og ekkert fataherbergi og er hægur leikur að breyta því til fyrra horfs. Barnaherbergin eru 2 annað einkar rúmgott en skáplaust, hitt með tvöföldum, hvítmáluðum skáp. Hjónaherbergið er gúmgott með fjórföldum innbyggðum skáp, hvítum plasthúðuðum. Gengið er út á suðursvalir úr hjónaherberginu, flísarnar á svölunum voru endurnýjaðar sumarið 2011. Af svölunum er frábært útsýni. Fataherbergið er hefðbundið með hillum og skápum. Baðherbergið á hæðinni hefur verið endurnýjað þar eru flísar á gólfi og veggjum, baðkar og góður flísalagður sturtuklefi. Innréttingin er hvít sprautulökkuð með mósaík flísum fyrir borðplötu. Handlaugin er stór. Öll hreinlætistæki eru hvít. Skoða þarf gler á efri hæðinni en þar er móða á milli glerja í einu svefnherberginu. Mjög góð og vel skipulögð, mikið endurnýjuð eign í vinsælu hverfi.


